05. október 2008 klukkan 21:22
Hey hó fallega fólk.
Var að horfa á þátt númer 3 af DAGVAKTINNI, snitt snitt hvað þetta eru fyndnir þættir. Ég hélt ég væri að drepast úr hlátri. Þeir eru bara snillingar þessir drengir jú og auðvita Ólafía Hrönn.. Hún er stórkostleg.
En að lífinu og tilverunni. Ísland að fara á hausinn og allt í steik. Þessi umræða er alveg að drepa mann úr leiðindum. Ég held að það sé ekki hægt að hlusta á þetta daginn út og daginn inn. Ég finn það alveg á að það kreppir að hjá manni. En hvað á maður að gera????
Ég er að reyna að minka útgjöldin á heimilinu en það gengur ekki alveg upp að öllu leiti. Olían er alltaf að hækka og matur og allt. Þannig að við Sindri minn fáum okkur nuðlur og súrmjólk á kvöldin og erum að vinna í þessu saman en ég er ekki að höndla olíuverðið.
En ekki dugir að grenja yfir því.
Einsog sannur Íslendingur segir ÞETTA REDDAST :)
Jæja ég ætla nú ekki að segja meira í dag. Ég finn að ég er alveg að fara í svartsýniskast
kv Hildur
28. september 2008 klukkan 05:07
Ja hérna hér.
Það er ég bara orðin heimsfræg á Íslandi. heehehehehe einmitt.
Singing bee!!! úfffffffffff þetta var gaman en mikið svakalega var ég með mikinn kjánahroll allann þann tíma sem ég sat í faðmi fjölskyldunar að horfa á sjálfa mig láta einsog bölvaður kjáni í sjónvarpinu.
Það sem mér fannst merkilegast var það að fólk bara sagði já Hildur mín. Þetta ert bara þú. Og þá fór kjánahrollurinn á fullt. SNitt maður. læt ég alltaf svona einsog bölvaður kjáni ??? maður spyr sig.
En hvað um það. Ég er ekki að standa mig í kóra dæminu sem ég ætlaði svo að skella mér í. Ég er svo ekki að nenna því. Enda orðin fræg;) heheheheh
jæja klukkan er margt og ég verð að fara að sofa
thjá
06. september 2008 klukkan 10:30
Hellú
Jæja loksins er veturinn kominn og allt að falla í mína heitt elskuðu rútínu. Sindri byrjaður í skólanum. Hann er núna kominn í GAGGÓ einsog það hét hérna í gamla daga. Hef nú ekki heyrt neinn ungling segja þetta en ég gefst ekki upp við að halda í unglinginn í mér og kalla þetta bara víst GAGGÓ!!!! og þarna hafiði það. Nú svo erum við mæðgin byrjuð í ræktinni.. Það er alveg magnað hvað WORDL CLASS er að sinna ungafólkinu okkar vel. Það er sér svo kallaður SHOKK salur þarna. Þar er einaþjálfari sem fylgist með þeim allan tímann og bendir þeim á hvað er best að gera. Sindri er búinn að mæta einu sinni og mjög ánægður með þetta. Á meðan var mamman að rembast við að gera eitthvað uppbyggilegt (uppá eigin spítur) í fullorðins salnum. Ég sá það að heilinn minn man nú ekki mikið. Megnið að tímanum fór í að ráfa á milli tækja og reyna að átta mig á því hvernig ég ætti að snúa í þessum blessuðu tækjum. Svo bara endaði með því að ég glápti á hina og REYNDI að gera eins. En þetta virðist hafa tekið þokkalega á þar sem mamman var gjörsamlega undirlögð í strengjum eftir allt erfiðið.
Nú svo ætlar mamman líka að skella sér í gamla kórinn sinn aftur í Nes kirkju. Ekki dugir að vera ekki að gera neitt tónlistarlegt í allan vetur. Veit ekki hvað er að verða um The commitments dæmið en ég ætla ekki alveg að gefa upp vonina þar.
Nú svo ætlar mamman einnig að taka þátt í smá keppni í vinnunni sinni sem fer fram í sjónvarpinu. Ég er ekki vissum hvað ég má segja mikið. svo ég læt bara vita þegar ég veit hvar mörkin eru:)
jæja ætla að spjalla við Ragga litla
bæjó
Hildur
31. ágúst 2008 klukkan 22:31
Sælt veri fólkið (ef það er einhver eftir sem nennir að koma inná þessa síður:)
Það er nú ekki mikið búið að brasa eftir sumarfríið góða. Vinna, éta og sofa.
Allt við það sama hérna hjá litlu fjölskyldunni í vesturbænum. Sindri reyndar orðinn TÁningur hann varð 13tán ára um daginn. Sá morgunn var mér mjög undarlegur. Þetta stóra barn er litla barnið mitt. Mjög undarlegt. Hann varð eitthvað svo fullorðinn í mínum huga þennan dag að ég var alveg hugfanginn af þessu. Alveg magnað hvað ég er búin að pambera þennan dreng í öll þessi ár. Því jú hann er litla barnið mitt sem fæddist bara tæpa 14 merkur og 52cm.. og hann hefur verið þetta litla barn í mínum huga í 13 ár.
En þennan dag áttaði ég mig á þvi að ég væri ekki móðir ungabarns. Ég var bæði mjög stolt af honum og smá sorgmædd yfir því að ég væri ekki aðal manneskjan í hans lífi. Maður getur orðið svo ruglaður.
Nú vinnan er alveg á fullu. Þetta er mjög krefjandi starf og umhverfi en ég er alveg að ná að fóta mig í þessu umhverfi. Hrikalega skemmtilegt fólk sem ég vinn með og allir að leggjast á eitt að vinnan flotta vinnu. Rosalega gaman að taka þátt í liðsheild.
well góða fólk ég er orðin orðlaus.. kannski af því ég er búinn að vera ó svo mikilli afslöppun í dag og blóðið hætt að renna :)
kv Hildur
Hibba Bibba
06. ágúst 2008 klukkan 12:46
Nú ég er komin heim. Ahhhhhhhhh einsog það er notalegt að vera hjá þeim Jóffu og Óla á Borgarfirði þá er alveg hrikalega gott að vera komin heim. Öll fötin orðin hrein og komin inní skáp og nýtt á rúmunum og lesið framá nótt. En eitt sem er smá galli. Ég er farin að vinna aftur. Það var svakalega erfitt að koma sér á fætur í morgun til að mæta í vinnuna. Úffffffffff enda mætti ég of seint. Var að skríða hérna inn 10 mín yfir 9. Það er nú ekki smart svona fyrsta dag eftir sumarfrí L En að skemmtilegra efni. Borgarfjörðurinn klikkaði ekki að þessu sinni. Hrikalega gott veður fyrstu dagana okkar og frábært veður á hinum mögnuðu Bræðslutónleikum. Þetta voru allt mjög rólegir tónlistarmenn og þegar Damian Rice kom á sviðið var ég við það að sofna. En þetta var allt saman mjög fallegt. Það var margt um manninn í litla þorpinu. Þar sem venjulega eru um 100 manns sem búa þarna urðu alltí einu 2000 manns á staðnum. Það kláraðist allt í Kaupfélaginu og það voru ekki einu sinni til frönsk kartafla á sunnudeginum. Nú Takínýinu mínum var stolið af snúrunum í húmi næturs. En það fynda var að ég svarf nánast ofaní snúrunum í tjaldi. En þar sem þetta er nú lítill fjörður fannst toppurinn en brókin er farin veg allra veraldar.. Enda er ég nú alls ekki vissum að hefði áhuga á að fara í þennan fatnað aftur...maður hefur ekki hugmynd um hvaða tilgangi þetta þjónaði blind fullum unglingum í húmi næturs. Nú svo var slakað á og beðið eftir verslunarmannahelginni. ÁLFABORGARSÉNS!!!! Þá er alltaf von um að lenda á SÉNS. En það gekk víst ekki að þessu sinni. En gott að lifa í voninni. Alltaf gaman að hitta sveitastráka. J Nú svo var farið á ball og þar dansaði ég einsog ég ætti lífið að leysa. Snitt hvað það var gaman. Á sunnudaginn sjá ég Ljótuhálvitana.. þau eru mjög fyndin. Það eina sem ég get sett úrá það er að löginn eru svo hröð og ég heyrði ekki nema brot af textunum. Sem er alveg stór partur af gríninu.Ahhhhhhhhhh þetta var svo frábært. Bæ í bili Hildur sveitakona
28. júlí 2008 klukkan 23:22
Halló halló
Nú er ég komin í sveitina góðu. Þetta er búið að vera svakalega góð helgi. Eftir mikla svaðilför til Borgarfjarðar (við vorum á 13 tíma á leiðinni) Ég ruglaðist nefnilega svolítið.... ég setti bensín á dísel bílinn minn fína og var að spá í því á meðan ég dældi hvað það var undarlega ódýr olían á Akureyrir miðað við í höfuðborginni. og þegar ég hugsaði um þetta og dældi rann upp fyrir mér að ég var að gera svo mistök.
Öskraði átt svo að dælur of fólk í kring skulfu af hræðslu. Hljóp svo um einsog vitlaus kona og vissi ekkert hvað ég átti að gera. Nú við biðum sem sagt í kl tíma eftir viðgerðarmanni sem dró okkur og bílinn (auðvita) á verkstæði og þeir töppuðu þessu af. ... þeim fannst ég frekar fyndin og held að þeim hafi fundist ég var svolítill kjáni :/
Nú svo brunuðum við í fjörðinn fagra og komum okkur fljótlega í háttinn.
Laugardagurinn rann upp fagur og í brakandi gott veður. Það var Bræðsludagur framundan. Það var sólað sig og allar græjur og svo var farið á þessa líka flottu tónleika. Snitt hvað þetta var skemmtileg.
Nú þar er öll verlsuarmannahelgin framundan svo ég á eftir að segja ykkur eitthvað spennandi...
bless í bili.
Hildur
24. júní 2008 klukkan 08:07
Dagur 1
Nú dagur eitt í " er hætt að reykja " átakinu er lliðinn. Hann var alls ekki svo erfiður. En úfffffffff dagur 2 var að byrja og ég vaknaði fyrir allar aldir og hver einasta taug í kroppnum var svo upp skrúfur að það hálfa væri nóg. Ég meira að segja slétti á mér hárið og alles. Held að ég hafi sjaldan getað talist vera A típa fyrren í morgun. Nú svo var bara settur plástur á bakið. Sem ég held að sé alls ekki sniðugt því mig klæjar alveg svakalega undan honum þarna. En allavegana plástur og tyggjó og gellan mætti í vinnuna langt á undan áætlun. Ég get svo svarið það!.
En annars er bara allt mjög gott að frétta af okkur litlu fjölskyldunni í Vesturbænum. Við komumst því miður ekki húsdýragarðinn í gær til að hlusta á kýrnar tala en við vonandi komumst að ári. Nú það er bara á stefnuskránni að njóta veðurblíðunnar í sumar og vinna þess á milli.
Ég veit að flest ykkar sem lesa þetta blogg langar að lesa eitthvað krassandi um karlamálin... en ég verð að viðurkenna að það er bara ekki rassbaun að gerast í þeim efnum þó ég feigin vildi. En með lækkandi sól hlýtur að fara að draga til tíðinda. :)
Jæja ég ætla að fara að vinna víst ég er nú komin hingað á þennan indæla vinnustað.
tjá bella.
Hildur
05. júní 2008 klukkan 11:34
Hellú
Nú er ég að verða kúkú á því að hanga heima. Ég er búin að vera hérna 1 sólahring og nenni ekki meir. Það er eiginlega betra að vera lasin með hita þegar maður er heima í veikindarfríi. Þá bara sef ég. En núna get ég ekkert gert og get ekki einu sinni sofi meira.
búhúúú HRINGIÐ Á VÆLUBÍLINN!!
Nei nei þetta er ekkert að fara með mig. Ég er bara að vorkenna mér. En þessi aðgerð... sem var ekkert á stærð við heilaaðgerð og engin geimvísindi gekk vel. Það eina sem ég er pínu pirruð yfir er að ég hélt að það ætti bara að skera í hægri fótinn. En neinei hann skar í báða.. sem er auðvita bara ok þvi illu er best aflokið.
En núna þarf ég víst að leggjast niður.
Knús og kossar.
Hilla
03. júní 2008 klukkan 18:03
Komiði marg blessuð og sæl.
Nú er svo komið að gamla konan er að fara í aðgerð á fæti á morgun. Þá að að fjarlægja æðahnút sem hefur myndast svona skemmtilega á hægri kálfa. Ég vona svo sannarlega að aldurinn sé ekki að færast svo hratt yfir að ég verði farinn að skrifa um erfiðar hægðir, slæmmsku í mjöð og tilboð sem Elliheimilið Grund var að senda mér. Því jú það er svo stutt þaðan fyrir Sindra minn að ganga í skólann.
Nei ég segi bara svona. Sko vegna þess að þegar ég var krakki fannst mér bara gamlar konur fá æðahnúta og þurfa að fara í aðgerð en það er víst ekki svo börnin mín. Nei ungir sem aldnir storma nú af stað og láta fjarlægja þennan ófögnuð.
Annars er ég öll að koma til eftir Spánar-ferðina góðu. Kannski er það líka dæmi um háan aldur að vera dauð þreytt eftir smá ferðalag. Nú og svo annað dæmi sem er að hræða mig með háan aldur er að karlmenn eru bara ekki að ná til mín þessa dagana. Mig langar bara ekki baun í bala að standa í einhverju karla-"rugli" en það lagast örugglega ef ég þekki mig rétt. Bara svona smá tímabil.... eða kannski komin á breitingar aldurinn. heheheh.. jésús ég er alveg að kafna í þessu aldursdæmi
Ég held ég hætti bara núna að tuða þetta og óska þess að þið eigð góðan og gleðiríkan dag.
Knús
Hildur B
30. maí 2008 klukkan 23:28
Ola!!!!
Sæll öll sömul!!
Nú er ég ný komin heim frá Spáni. Það var alveg ótrúlega gaman. Reyndar varð ég veik 3 fyrstu dagana en ég jafnaði mig nokkuð og gat haft gaman síðustu 3 dagana:)
Elsku María mín. Það var rosalega gaman að hitta þig þarna á Spáni og Ragga systir var í skýjunum yfir að hafa hitt þig og gat ekki hætt að tala um hvað þú værir frábær :) Þetta var mjög afslappaður og góður dagur. Þúsund þakkir :)
En þetta var sem sagt frábært. Eini kannski gallinn við þetta er að við vorum á svakalega flottu hóteli lengst í burtu frá öll og ekki mikið hægt að gera á staðnum nema að liggja í sólbaði. En við reyndum að gera það besta úr því og ferðuðumst eitthvað um þarna í kring.. mjög skemmtilegt.
En mig langar frekar að segja ykkur ferðasöguna live og ég bara nenni ekki að skrifa hana :/
En lífið er bara frábært..
Love Hildur